Þessi myndarlega brandugla kom í óvænta heimsókn að Leirubakka á jóladag. Hún hafði komið sér inn í fjárhús á bænum, en fann ekki leiðina út hjálparlaust. Hún var feit og pattaraleg, enda vafalaust mikið um æti núna í öllum músaganginum sem fréttir hafa verið af á Suðurlandi í blíðviðrinu í haust og vetur. Branduglur verpa á hverju sumri í landi Leirubakka, aðallega á hrauninu sunnan við bæinn, þar sem þær sjást oft á flugi, einkum í ljósaskiptunum síðla sumars og á haustin.
Uglan varð að vonum frelsinu fegin
